| Innrásarvíkingarnir | |||
![]() Rökkvi Vésteinsson, Elva Dögg Gunnarsdóttir og Beggi blindi eru Innrásarvíkingarnir, furðulegasti uppistandhópur Íslands og þó víðar væri leitað. Beggi er blindur, Elva er með Tourette heilkenni og Rökkvi er furðufugl á allan hátt. Uppistandshópurinn var stofnaður sumarið 2011 og byrjaði með sýninguna "Innrásarvíkingarnir sigra Ísland - Því hálfvitar eiga að vera heima hjá sér". Hópurinn samanstóð þá af Begga, Rökkva og Óskari P en Elva tók við af Óskari í ágúst það ár. Sýningin fór um allt land og voru 15 uppistönd í jafn m mörgum bæjum á landinu. Þau voru í réttri röð: Reykjavík, Keflavík, Flúðir, Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjar, Egilsstaðir, Borgarnes, Laugarvatn, Akureyri, Húsavík, Siglufjörður, Grindavík, Ísafjörður, Grundarfjörður og Selfoss. Elva Dögg byrjaði í hópnum frá og með Akureyri. Tveir gestir komu einnig fram með hópnum, Trúðurinn Wally sem hljóp í skarðið fyrir Elvu í Grindavík, Begga á Grundarfirði og Rökkva á Selfossi og DeAnne Smith hljóp í skarðið fyrir Elvu á Grundarfirði. Hlekkir: |
|||